http://www.sunnevag.barnaland.is/

Barnalandssíða Sunnevu;o)

15.02.2008 17:39:19 / silja_rut85

long time

Ég er farin að æfa fimleika með halastjörnunum. Það er í sama húsi og sundið er í garðabæ, semsagt þar æfa allir fimleikahópar sem að æfa með Stjörnunni. Mér finnst það geggjað, loksins er ég að gera eithvað sem að ég hef áhuga á og hef rosalega gaman af..

Gummi er  búin að flísaleggja eldhúsið og taka niður veggjin sem að skildi stofuna og eldhúið að..ég fíla það mun betur þannig..bara orðið frekar flott inni hjá okkur.

Sunneva er alltaf jafn dugleg, farin að sitja taka skríðuskref og er alltaf útum allt..en ég þarf samt eiginlega ekkert að hafa fyrir henni. Hún þarf bara eitt dót og þá er hún góð, getur alveg dundað með það allan dagin liggur við...

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 01:04:54 / silja_rut85

vVáá er ekki í lagi eða

jæja ég hef ekki bloggað í ár og öld finnst manni...Fréttir: Dagný og Guðmann voru að eignast þennan æðislega stóra dreng, 18 merkur 55 cm..algjör dúlla..

Stelpan mín bragast vel og er auðvitað alltaf bros allan hringin. Er að fara með hana í 5 mánaða skoðun núna á miðvikudag og hlakka ég rosa til að sjá hvað langintesin minn er orðinn langur :lol:...Við  erum vonandi að fara að byrja með hana í ungbarnasundi í janúar, get ekki beðið.

Ég er búin að gera allt fyrir jólin og núna bíð ég bara eftir að komast norður. Ahh já hjá mér er það alltaf heim. Er ekki alveg að venjast því að ég eigi heima í Hafnarfirði..híhí

ÆÆ já annars kemur fyrir að maður verður einmanna. Var í þessu að koma af jólahlaðborði og það var svo mikið áfengi þar vváá ég horfði á það og alltí einu kom þessi púki á öxlina á mér og sagði mér að það væri nú gott að skvetta þessu bara í sig og verða alveg blekuð. En það er auðvitað ekki hægt þarf sem að litla snúllan er á brjósti og svona.:lol:  En það kemur að því að það verður hægt. En núna hefur hún forgang..

 5 dagar og þá er farið norður :haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 13:47:43 / silja_rut85

PÉSI ER HVOLPAFULLUR!!!

Jebb þið heyrðuð rétt það eru að koma fleiri afkvæmi á heimilið því að kisan okkar er með kettlinga í maganum..ég er ekki viss hvað hún er komin langt en hún er komin með ágæta bumbu...

Ég var með Sunnevu í sprautu og hún skældi ekkert, hún er svo dugleg...Ég fékk hjúkkuna til að vikta hana bara svona fyrir mína forvitni og var hún 6,7 kg já hún er sko farin að taka í skal ég segja ykkur...

Ég fór í bíó í gær á Heart Brake Kid og hún var æði, og bara kynlífsatriðin voru snilld!!!á þá meina ég rosalega fyndin:lol::lol:...myndin er bara rosalega góð og mæli ég sko hiklaust með henni..

Við fjölskyldan erum að fara til Akureyrar núna um helgina að sjá litlu frændana og hlakkr mér svo til, þeir eru bara sætastir sko, Fjólu og Gunnar strákur er með svo þykkt og mikið að ég hef bara aldrei séð annað eins, bara krúttlegt. Og Helenu og Arons strákur er með ljóst hár maður sér það ekki alltaf sko :D

Sé ykkur Akureyringar um helgina :D:D 


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 01:38:36 / silja_rut85

hanga heima

Já ég er bara eiginlega búin að hanga bara heima alveg í viku, litla Sunneva var veik með hita og kvef..ég fór með hana til læknis og hún var skoðuð öll í bak og fyrir og það var bara flensa, og er hún orðin frísk núna með smá hósta samt. Var alveg veik í viku :(

Ég er búin að fara með hana í 3 mánaðaskoðun, Jamm og hún var sko orðin löng, 66 cm og 6,570 kg jahá og barnalæknirin vildi varla trúa að þarna væri á ferð bara 3 mánaða barn, svo var hún svo ánægð með hvað hún væri spert og líka hvað hún væri brosmild, og auðvitað var ég mjög ánægð með það :haha:

Sunneva  á von á 2 frændsyskinum núna á næstunni, semsagt báðir bræður Gumma eiga von á barni og er meira að segja Fjóla kærasta Gunna gengin frammyfir, já manni hlakkar svo til þegar það eiga að fara að koma svona glæ ný börn í heimin..

Ég fór með Hildi vinkonu minni á hitting í dag!!! og það var bara mjög gaman. Stelpur að hittast með börnin sín, spjalla og svona. Það er alveg mösst að komast út svona annaðslagið... Vá því að þegar maður er búin að eignast barn þá er maður bara orðin net nörd dauðans, það er bara rosalegt heheheheh:lol:  og það fer ekki vel með mann að vera lltof mikið að tölvast......

 

Jæja vera svo dugleg að kvitta :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 12:50:31 / silja_rut85

flott flott

JJJiii hvað maður er eithvað lélegur við þetta, þá meina ég að blogga á þessari blessaðri síðu minni. En það sem að ég hef verið að bralla er ekki mikið en það er eithvað. Ég t.d var að gera slátur í fyrsta skipti.. það var frekar nestí sko og lyktin ekki spes, en svo var ég að prufa að borða þetta og nnnnaammmm ég bara trúi varla að eithvað svona ógeðslegt bragðist svona vel heheh. En ég gerði slátur með Söndru og tengda mamma hennar hjálpaði okkur :haha:. En þetta var bara mjög gaman

Ég hef verið að fara til tannlæknis hjá háskólanema sem að er svo miklu ódýrara jjjiii það er mikill munur, ég er að fara á eftir að láta draga endajaxl vá hann er í efri góm og er farin að bíta niðrí neðri góm8| þannig  að það er komin tími til skal ég segja ykkur...;)

Já svo er það litla prinsessan mín hún Sunneva, hún er draumur í dós eins og alltaf, en er búin að vera með einhverja magakveisu greyið, er aldrei farin að sofa fyrr en um 1, en hún var vön að vera sofnuð svona hálf tíu. Já þetta er bara auðvelt og svo gefandi að vera með hana, hún er alltaf bara bros allan dagin.. Núna er hún 2 mánaða og 3 vikna farin að grípa og snúa sér frá baki yfir á maga :haha::haha:

 

Já það er ekki mikið meira að frétta en reyni að vera duglegri að blogga  :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 21:12:35 / silja_rut85

Reykjavíkinn

Já það er sko alveg ágætt að vera hérna í Rvk, en ég verð nú að segja að ég er farin að sakna margra á Akureyri og þá sérstaklega Mömmu og Írisar.. Jám ég er í smá volæði hérna alltaf bara ein með litluna, að vísu er það alltílagi, en ég er farin að sakna félgsskapsins þar. Já ég er bara að hugsa að fara bara að stunda mömmumorgna, ég er ekki alveg viss hvað nákvæmlega er gert þar, en vonandi það geti lyft mér eithvað upp:|:|

En að öðru en bara væli.:D Það er nú ekki mikið að gerast hjá mér, sama rútínan gefa skipta laga til leggja sig skipta á fötum og þvo föt.. Váá litla Sunneva gubbar svo mikið alltaf að ég er bara alltaf að skipta á fötum og þvo föt, er farin alvarlega að spá í að kaupa þurkara en sumu hefur maður bara ekki efni á. En ég og Gummi fórum í Smáralind um dagin og ég held að ég hafi bara aldrei keypt mér jafn mikið, ég fann tvær peysur einar buxur og bol, meik og body lodion og ástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur það er því að yfirleitt þegr að ég fer í verslunarleiðangur kem ég heim tómhent, og svo heldur mátaði ég bara eina peysuna, ég er bara frekar stolt af mér:). Sunneva kom með og hún var vakandi allan tíman en samt bara í sínu fína skapi að skoða heimin..8)

Ég er svo að fara að koma til Akureyra helgina 22 sept, í brúðkaupið hennar Örnu Gerðar og hlakkar mér mikið til. Ég og Íris ætlum að flytja smá ræðu og þarf ég að fara að búa hana til, kannski bara í gegnum síma með Írisi en allavegana þetta verður rosalega flott brúðkaup án efa...hhhmmm hvað á ég að gefa henni í brúðkaupsgjöf???????? :S:S

P.S endilega skoðið síðuna hennar Sunnevu á barnaland.is/barn/60635


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 22:26:46 / silja_rut85

komin heim

Jæja kakkar þá er ég komin heim í hafnarfjörðin með pæjuna og gengur allt bara mjög vel, ég hef verið heppin og eignast mjög auðvelt barn.Við erum loksins komin með netið, og líka heimasíma. Það er bara mjög fínt að vera hérna í Hafnarfirði, svo erum við líka í miðbænum þannig að það er mjög stutt í skemmtun og búðir og svona.

En ég ætla að reyna að lýsa fyrir ykkur upplifuninni að verða mamma. Fæðingin var mjög auðveld til að byrja með en seinni hlutin mjög erfiður ég var klt í rembing og tók sjálf fæðingin frá fyrsta verk 10 tíma. Fyrstu dagana eftir þá fannst manni bara að eins og að þetta hafi verið það versta ever, en núna þegar að ég hugsa útí það þá var þetta bara frekar normal fæðing miða við hvað sumar lenda í, en það er sko satt hvað þetta gleymist... Fyrstu dagarnir eru skrítnir, þarna ertu komin með alveg ný og ókunna manneskju og þú elskar hana útaf lífinu, en svo hugsar maður gvuð á ég að sjá um þessa litlu mannveru. Það er pínu erfitt fyrst en svo finnur maður taktinn. En annars er þetta búið að vera æðislegt hún svo góð bara draumur í dós. Núna er hún orðin 5 vikna og er byrjuð að brosa á fullu, geggjað krúttlegt. Mér tóks loksins að koma brjóstagjöfinni í gang eftir mikið álag pump og rugl og núna er hún varla að fá neitt auka. Gummi er að standa sig vel sem pabbi og hann hjálpar mér mikið á heimilinu og svo er hann líka búin að gera svo mikið hérna meðal annars setja upp innrétttingu og alskyns stúss heima án hans væri þetta ekki einu sinni heimili, svo að ég get sko ekki kvartað neitt yfir því. Sandra hefur alveg verið að bjarga mér kemur í heimsókn og ég verið að fara í heimsókn til hennar þannig að ég er als ekkert að einangrast, svo þarf ég bara að fara að misnota dagný og þá er ég góð. En Sandra meðal annars passaði fyrir okkur þegar að við fórum í berjamó þannig að maður getur allavegana treyst á einn til að passa.

Svo erum við búin að nefna lilluna okkar Sunneva.....

Og hérna eru nokkrar myndir af Sunnevu....


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 00:00:59 / silja_rut85

Lilla


» 16 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 19:05:21 / silja_rut85

Ný íbúð nýr bíll og bráðum nýtt bebes

Já enn er allt í dúnalogni hjá henni sillben og hún komin 5 daga framyfir :evil:.. Orðin pínu pirruð á þessu því að mér langar til að fá að sjá hvað ég hef að geyma í þessarri risa bumbu minni og trúið mér hún er ekkert að hætta að stækka þótt að ég sé komin á tíma.8|

En ég og Gummi erum bara búin að hafa það gott hérna á akureyri búið að fá sér mikið af brynju ís og búið að taka þó nokkra göngutúra í kjarnaskógi í von um það að ég hrökkvi í gang en NEI það kemur kannski einn verkur og svo búið..pirrr. En tímin líður samt svo hratt þannig að það verður komið barn áður en ég veit af, og kannski fæ ég það bara í afmælisgjöf en það er bara eftir 2 daga semsagt 19 júlí. Þannig að ég er svo sem alveg róleg.....en samt ekki allta, var að láta Söndru ýta á punkta á löppinni minni sem að eiga að koma fæðingu af stað hahahah :lol:

Ég og Gummi vorum að kaupa okkur nýjan bíl Ford focus 2000 árgerð station keyrður 74þúsund, hann er mjög góður í keyrslu finnst okkur og við erum mjög ánægð með hann. Svo þurfum við bara að koma gamla í gegnum skoðun og svo fer hann bara á sölu.:haha:

 

Hérna er ég komin um 39 vikur. Orðin voða stór :o

 

Og hérna er nýji bíllin og ég komin 5 daga framyfir :haha::)

 

 


» 22 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 01:29:44 / silja_rut85

Biðin mikla

hæhæ núna er ég bara á Ak að bíða bara, bíða eftir litla krílinu mínu hlakka svo til að sjá það og vita hvort að það sé strákur eða stelpa. En í könnuninni er 60 %sem að halda að það verði stelpa og 40% strákur, sjálf hallast ég að því að þetta sé stelpa. En er samt alveg sama verð auðvitað ánægð hvort sem að það verður.:o

Já en ég kom hingað fyrir svona 1 og hálfri viku síðan og er bara búin að vera hjá mömmu og írisi. Gummi kom ekki fyrr en fyrir 3 dögum því að hann var að púla við að mála og setja upp eldhúsinnréttingu í íbúðinni upp í hafnarfirði, pabbi hans og gunni hjálpuðu honum þannig að þetta gekk bara ágætlega hratt. Ég var bara með endalausar áhyggjur að hann myndi bara missa af fæðingunni, þannig að ég er í sjöunda himni að hann skuli vera komin elsku dúllan mín. Við fengum að vera í íbúð sem að frænka mín á í furulundi sem er bara glæsileg á allan hátt og uppáhaldið mitt hérna er rafmagnsrúm og hornbaðkar, já verð að njóta þess í þessar 2 vikur sem að við fáum að vera hérna :haha:

En jæja þá ætla ég að halda spenningnum mínum áfram í þessarri bið eftir litla barninu mínu sem að samkvæmt sóar á að koma 12 júlí sem að er eftir 2 daga . en svo er bara spurning hvenær það ákveður að líta heimin dagsins ljós:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 14:13:13 / silja_rut85

dúdúrú

Ohh ég er að fara að koma til Akureyrar í næstu viku mér hlakkar geggjað til. Þá tek ég allt með mér barnaföt og allt annað sem að tengjist barninu, þar sem að ég ætla að eiga á Akureyri. En vá það er mikið að gera hjá mér og Gumma eða þar að segja Gumma. Málið er að hann kemur ekki fyrr en í byrjun Júlí því að fyrst þarf hann að flytja og mála í hafnafirði þar sem að við erum að kaupa, og mér langar svo að hjálpa en það verður svo sem ekkert mikil hjálp í mér þar sem að ég er með bumbuna útí loftið og svo veit ég ekkert hvenær littla/i ætlar sér að koma í heimin. Svo að núna er ég bara að pakka litlu niður eins og fötum og diskum og svona. Það verður geggjað að komast í sína eigin íbúð, þetta er neðri hæð og það er bað og garður sem er bara möst, og svo erum við líka búin að ákveða að setja nýja eldhúsinnréttingu og við erum búin að ákveða hvernig innréttingu og allt og hlakkar geggjað til að sjá hvernig það kemur út. :D

Ég er búin að vera að taka maraþon í greys anatomy og ómæ hvað þetta eru góðir þættir, ég er búin að vera alla daga húkkt við sjónvarpið og núna er ég búin með alla sem að ég á og núna veit ég bara ekkert hvað ég á að gera við mig. Svo er lost serían búin og one tree hill búin, þannig að ég er bara búin að vera dugleg að fara bara í sund og svona, og hanga með Dagný og Söndru8). Annar er ég mikið búin að vera bara ein heima og mér líkar einveran bara ágætlega. Á það til að verða pínu leið í þessu myrkri hérna sem að ég bý við það er nefninlega fyrir öllum gluggum eithvað karton svo það verði ekki brotist inn hérna:whut:. Ég á nú samt heima hérna rétt hjá laugarveginum þannig að ég væri alveg til í að rölta eða fara kaffihús en ég bara nenni því ekki ein, Sandra er alltaf með veik börn og svona en jæja ég ætla að hætta að nöldra því að ég man að heiðrún er hérna í dag ætla að prufa að hringja í hana síjú:haha:

 Æ veit ekki hvað ég á meira að segja en ég bara sé ykkur, kem ábyggilega á sunnudaginn.

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 12:46:31 / silja_rut85

spurningalisti

Stal þessu frá Björgu minni

Hvað er fullt nafn mitt?

Hvenær á ég afmæli?

Hvernig hittumst við ?

hvað fannst þér um mig þegar við hittumst?

 Hvenær hittumst við seinast? Hvernig myndir þú lýsa mér í 3 orðum?

Hvar á ég heima? Höfum við kysst? erum við góðir vinir?

hef ég treyst þér fyrir leyndarmáli?

á ég : -dýr?

-barn?

-ipod?

 -bíl?

 -íbúð?

-síma? (ef já hvað er nr. mitt - ekki kíkja í símaskránna!)

Hvernig eru augun mín á litinn?

Höfum við farið á trúnó? Hefurðu séð mig gráta?

höfum við farið í ferðalag saman? höfum við farið á tónleika saman?

 veistu við hvað ég vinn?

er ég í skóla?

 hvaða líkamshluti á mér er sérstakastur?

ef þú myndir festast með mér á eyðieyju í nokkra daga, hvaða tvo hluti myndir þú taka með?

ef ég myndi hringja í þig og biðja þig um að hitta mig og gera eitthvað, hvar myndum við hittast og hvað myndum við gera?

 ef þú myndir koma mér á óvart hvað myndir þú gera fyrir mig ? hvað er uppáhalds drykkurinn minn?

viltu að ég svari þessu líka fyrir þig ?


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 01:32:33 / silja_rut85

Smá sletta

Hæ er búin að hafa það rosa gott, er búin að fá Mörtu mína í heimsókn tvisvar, en núna er hún að fá að gista því að hún er að fara vestur. Það er alltaf gott að hafa vinkonur svona hjá sér, maður er víst alltaf kvartandi yfir því að maður hafi ekkert að gera hérna í Rvk. :|

Á morgun liggur leiðin norður til Akureyrar, ég og Gummi fáum far með Dagný og Guðmanni, ég ætla að vera þar til fimmtudags. OHhh hlakkar til að slaka á þar með vinum og fjölskyldu. ÆÆ ég veit nú ekki hvað ég á að skrifa meira ætlaði bara að láta vita í geggnum bloggið mitt að ég væri að koma :haha: 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 11:54:28 / silja_rut85

hehe smá sjúkrasaga

  

Jæja núna þegar ég var komin 32 vikur og 4 daga þá fór allt að gerast ég fékk að fá samdrætti á 10 mín fresti þegar ég var að keyra á milli ak og rvk. Þegar að ég kom heim voru hins vegar bara 2-3 mín á milli. Eg hunskaðist upp á sjúkrahús tók ekkert með mér því að mér fannst þetta nú ekki vera neitt big deal.  Ég var sett í mónitor og þar sást að ég var með bullandi samdrætti en hún kallaði þetta samt hríðar því að ég fann til með þessu. Eg fékk verkjatöflur og sprautu í rassin til að stoppa þetta. Mér hefur aldrei liðið jafn illa eftir sprautu áður hjartslátturinn rauk upp og fékk geggjaðan skjálfta í líkaman ekki mjög þægilegt. Og svo sagði hún mér að ég þyrfti að vera yfir nótt, og herbergið sem að ég fékk var eins og stór geymsla með rúmmi í og ég var bara hálf hrædd við herbergið. Dagin eftir fékk ég að fara um hádegið, eftir alskonar test.8|

 Nóttinn eftir var eins ég þurfti aftur að fara upp á sjúkrahús og gista af sömu ástæðu, nema núna þurfti ég að gista tvær nætur en núna fékk ég annað herbergi sem að var bara kósí og svo fattaði ég að það er stöð 2 og 2 bíó þannig að ég hafði eithvað að gera. Svo komu líka Dagný og Sandra til mín til að halda mér félagskap:D, og Gummi auðvitað;). Og það var bara ágæt að láta stjana aðeins við sig en ég var samt mjög fegin þegar ég loksins fékk að fara heim því að seinasta nóttin sem að ég var þarna var ég færð í herbergi með einni annarri sem að vildi bara hafa frostmark í herberginu sínu alltaf með gluggan opin, ég get svo svarið það að ég var komin með smá kvef þegar ég vaknaði. En núna er ég komin heim og ég á að liggja þangað til að ég er komin 34 vikur svo eftir það að hafa hægt um mig því að litla krílið mitt er alltof lítið til að vera að koma það þarf að bakast í ofninum mínum allavega til 36 viku og náttúrulega best af að það nær 38.:D

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 18:15:58 / silja_rut85

SUMARBÚSTAÐUR, EVROVISION OG KOSNINGAR

Já þessi helgi er búin að vera æði, það er geggjað að vera bara 2 í sumarbústað grilla horfa á kosningar og evrovision. Ég var nú samt ekki kát þegar að stjórnin hélt velli ómægot ég var alveg brjál, ég var ekkert smá ánægð fyrst þegar tölur komu og stjórnin fallin en NEI auðvitað hélst það ekki þannig sem að er auðvitað bara týpíst, maður var búin að halda í vonina 2 dögum áður að ísland kæmist upp úr forkeppninni en sú von var brostin um leið þannig að þetta kom mér svosum ekkert á óvart:frown:. En vonandi verður kosið betur næst ég bara skil ekki afhverju sjálfstæðismenn fá svona góða kosningu.Evrovision kom mér eiginlega bara á óvart  mér fannst bara mikið um góð lög og svona og lagið sem að vann var rosalega fallegt. Heimurinn hafur greyninlega verið að hugsa um hvað væri best sungið en svo kom það skrítna að lagið sem að varð í öðru sæti var algjört grínlag, hhmm skrítið.:$

Ohhh en það var geggjað að vera í sumarbústaðnum bara 2 ein, ætluðum alltaf að gera þetta frá janúar en lætum loks verða að því núna, gera þetta svona rétt áður en að krílið mitt kemur sem að á að koma eftir 2 mánuði. Ekki stutt:haha::haha:

Jæja ég ætla svo að koma til ak um helgina og ég vona að ég geti séð alla ef að tími leyfir

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan